flowchart LR sj["Stafræn Sjónabók<br/>mynstur"] --> my["Mynsturgerð<br/>mynd í mynstur"] my --> pv["Prjónavélin<br/>prjónar mynstrið"] sj --> pv
HiDef textíll
Rannsóknarverkefni við Háskóla Íslands
HiDef textíll
Hér mætast textíll, tækni og íslenskur menningararfur. Þetta er opin handbók: við sýnum skref fyrir skref hvað við gerðum, svo þú getir gert það líka.
Viðfangsefni
Hvert viðfangsefni er sjálfstætt verkefni með eigin köflum. Þau tengjast: mynstrin úr Sjónabók og mynsturgerðinni enda á prjónavélinni.
Opin mynstur · Menningararfur
Stafræn Sjónabók
Íslensk útsaumsmynstur frá 16.–18. öld sem fylki af núllum og einum. Sæktu þau og notaðu í eigin hönnun.
Reiknirit · Gervigreind
Mynsturgerð
Breyttu ljósmynd eða texta í prjónamynstur með Python. Hvað virkaði, hvað ekki og hvað bíður.
Sagan á bak við
Sumarið 2024 tóku þrír nemendur úr vélaverkfræði, hagnýttri stærðfræði og fatahönnun gamla prjónavél frá 10. áratugnum og snjallvæddu hana með netsamskiptum og frjálsum hugbúnaði (Lúðvíksson o.fl., 2024, ágrip). Verkefnið var styrkt af Nýsköpunarsjóði námsmanna.
179 nálar á nálabeði vélarinnar
4 litir í einu prjónamynstri
3 nemendur úr þremur greinum
9 mannmánuðir frá Nýsköpunarsjóði námsmanna
Morgunblaðið fjallaði um verkefnið 2. júní 2024: Sjálfvirknivædd prjónavél í bígerð (Guðmundsdóttir, 2024).
Meira
Hugbúnaður
Allar opnu geymslurnar á GitHub og hvernig þú notar þær.
Nám og fræði
Hvaða námsgreinar liggja að baki og hvar þú finnur námið.
Orðalisti
Nálastillir, einband, mynsturfylki og fleiri orð útskýrð.
Bæta við viðfangsefni
Prjónavélin er bara byrjunin. Svona bætist nýtt textílverkefni við.
Elías Lúðvíksson, Guðrún Ísafold Hilmarsdóttir og Snæfríður Ebba Ásgeirsdóttir. Ábyrgðaraðili: Helga Ingimundardóttir, lektor í iðnaðarverkfræði, Háskóla Íslands. Úr lokaskýrslu verkefnisins (Lúðvíksson o.fl., 2024).





