Stafræn Sjónabók
Gömul íslensk útsaumsmynstur, opin öllum á tölvutæku formi
Í hnotskurn
Íslensk sjónabók geymir útsaumsmynstur úr handritum frá 16.–18. öld. Hér eru mynstrin sem einföld fylki af núllum og einum, tilbúin til notkunar í prjóni og annarri hönnun. Þetta er sjálfstætt verkefni sem tengist prjónavélinni og mynsturgerðinni.
Hvað er Sjónabók?
Íslensk Sjónabók (Heimilisiðnaðarfélagið o.fl., 2009) er tímamótaverk sem Heimilisiðnaðarfélagið og Þjóðminjasafn Íslands gáfu út. Hún inniheldur safn tíu handrita frá 16.–18. öld sem varðveitt hafa íslensk útsaumsmynstur.
Þegar skýrslan var skrifuð árið 2024 var bókin komin úr prentun og ekki stóð til að endurprenta hana sökum kostnaðar (Lúðvíksson o.fl., 2024). Hún var lengi ófáanleg og dýr í prentun. Árið 2026 safnaði Heimilisiðnaðarfélagið fyrir endurprentun á Karolina Fund og söfnunin tókst (Heimilisiðnaðarfélag Íslands, 2026; Íslensk Sjónabók, e.d.). Bókin er um 700 blaðsíður, á íslensku og ensku (Heimilisiðnaðarfélag Íslands, e.d.-b). Endurprentunina má forpanta í vefverslun Heimilisiðnaðarfélagsins á 28.900 kr. (sótt 16. nóvember 2026) (Heimilisiðnaðarfélag Íslands, e.d.-a).
Markmið útgefanda var að gera mynstrin aðgengileg svo hönnuðir gætu endurnýtt ríkan menningararf í listsköpun sinni. Útgefendur tóku því vel í að verkefnið gæfi mynstrunum nýtt líf og útbyggi tól til að vinna með þau á gagnvirkan hátt.
Verkefnið hefur leyfi frá Heimilisiðnaðarfélaginu og Þjóðminjasafni Íslands til að dreifa mynstrum úr Sjónabók á stafrænu formi (Lúðvíksson o.fl., 2024, kafli Hugverkastefna). Markmiðið er að auka útbreiðslu þessara séríslensku mynstra og gera þau aðgengileg hönnuðum og almenningi til nýsköpunar og skapandi nota.
Kaflarnir
1
Frá rúðupappír í fylki
Svona urðu mynstrin tölvutæk.
2
Notaðu mynstrin
Sæktu mynstrin eða vinndu þau sjálf(ur).
3
Borðar, bakgrunnar og letur
Skreyttu prjónamynstur með Sjónabók.
4
Frá bók í band
Mynstrin, prjónuð.
Ekki bara fyrir prjón
Mynsturgerðin úr Sjónabók er ekki einskorðuð við prjónaskap. Grafískir hönnuðir geta nýtt mynstrin í textílvinnu eða öðrum miðlum. Með því að færa þessi séríslensku mynstur yfir í gagnvirkt stafrænt form opnast dyr fyrir fleiri skapandi útfærslur á menningararfinum.
Snæfríður Ebba Ásgeirsdóttir (stafræn mynstur). Úr lokaskýrslu verkefnisins (Lúðvíksson o.fl., 2024); kóði og mynstur í Sjonabok (HiDef Textiles, 2024).

