Um HiDef textíl
HiDef textíll er rannsóknarverkefni við Háskóla Íslands, leitt af Helgu Ingimundardóttur, lektor í iðnaðarverkfræði. Verkefnið sameinar textíl, tækni og rannsóknahugbúnað við íslenskan menningararf og sjálfbærni, með áherslu á nýsköpun, miðlun og þátttöku almennings.
Markmið
- Þróa notendavænar aðferðir og verkfæri fyrir snjallprjón
- Miðla ferli og niðurstöðum til almennings og skólasamfélags
- Styðja við hagnýta nýsköpun og menntun
Hvernig vefurinn virkar
Vefurinn skiptist í viðfangsefni. Hvert viðfangsefni er sjálfstætt verkefni með eigin forsíðu og köflum sem lesa má eins og bók, en þau tengjast innbyrðis:
- Prjónavélin: handbók um að snjallvæða Passap E6000.
- Stafræn Sjónabók: opin íslensk mynstur.
- Mynsturgerð: reiknirit sem búa til prjónamynstur.
Hugmyndin er handbók sem aðrir geta fylgt til að endurgera það sem hér var gert. Allt efni er sótt í skýrslur og kóða verkefnanna og hver síða segir hvaðan efnið kemur. Fyrsta efnið kemur úr verkefni sem nemendur unnu sumarið 2024 með styrk frá Nýsköpunarsjóði námsmanna. Fleiri viðfangsefni bætast við með sama sniði.
Fólkið
Verkefnisstjóri og ábyrgðaraðili: Helga Ingimundardóttir, lektor í iðnaðarverkfræði við Háskóla Íslands.
Nemendur og kennarar hvers verkefnis eru taldir upp á síðu verkefnisins, sjá Fólkið og samstarfið.
Samstarfsaðilar
Útlit og tækni
Vefurinn er skrifaður í Quarto og notar útlit Háskóla Íslands úr sniðmátinu HI-IDN/quarto-hi. Frumkóði vefsins er á GitHub.
Lýsing og markmið eru af fyrri útgáfu þessa vefs. Upplýsingar um fyrsta verkefnið eru úr Lúðvíksson o.fl. (2024).