Bæta við viðfangsefni
Svona bætist nýtt textílverkefni við vefinn
Vefurinn er gerður fyrir mörg textílverkefni. Prjónavélin, Sjónabók og mynsturgerðin eru fyrstu viðfangsefnin. Nýtt viðfangsefni, hvort sem það er önnur vél, vefnaður eða útsaumur, fylgir sama sniði.
Reglurnar
- Ekkert er fundið upp. Allt efni kemur úr skýrslu, kóða eða annarri heimild sem hægt er að vísa í.
- „Unnið af“ á hverri síðu. Neðst er kassi með nafni nemandans sem vann verkið og úr hvaða kafla eða geymslu efnið er. Heimildir eru í texta og í heimildaskrá.
- Opnar geymslur. Vísað er skýrt í kóðann og sagt hvernig á að nota hann.
- Einfalt mál. Skrifað fyrir almenning: stuttar setningar, skref fyrir skref.
- Sjálfstætt en tengt. Hvert viðfangsefni stendur eitt og sér, með hlekkjum í tengd viðfangsefni.
Skrefin
Tengdu heimildina. Ef verkefnið á skýrslu í eigin geymslu, bættu henni við sem submodule með https slóð:
git submodule add https://github.com/HiDefTextiles/<geymsla>.gitVeldu myndir og þjappaðu þeim. Bættu myndunum við
scripts/sync-assets.sh. Aðeins skrár sem eru taldar upp þar fara á vefinn, og skriftan breytir þeim í WebP, mest 1200 punkta á lengri hliðina.Allar myndir á vefnum eru þjappaðar í WebP áður en þær fara í geymsluna. Myndir sem eru settar beint í
img/þjappar þú meðmake images FILES="img/vefnadur/mynd.jpg"sem setur
mynd.webpí stað frumritsins (mest 1200 punktar, gæði 78). Fyrir skjámyndir, rafrásir og mynsturreiti, þar sem hver punktur skiptir máli, notar þúLOSSLESS=1 sh scripts/compress-images.sh <skrá>. Myndir á síðunum hlaðast sjálfkrafa þegar lesandinn nálgast þær (loading="lazy").Myndir og myndbönd af Instagram má sækja auðveldlega með tólinu instagram-archiver. Þjappaðu myndunum með
MAX=1080 sh scripts/compress-images.sh, settu þær íimg/instagram/<viðfangsefni>/og skráðu færslurnar íscripts/instagram.py, sem setur myndasafn með hlekk á hverja færslu neðst á síðuna. Upprunalega safnið þarf ekki að geyma.Settu myndbönd á YouTube, ekki í geymsluna. Myndbönd eru aldrei vistuð í git. Hladdu þeim upp á YouTube-rásina (tungufoss?) og bættu þeim í spilunarlistann HiDEF textiles. Í lýsingu myndbandsins kemur textinn úr færslunni og hlekkur á upprunalegu færsluna á Instagram. Skráðu svo auðkenni myndbandsins (11 stafirnir á eftir
v=eðashorts/í slóðinni) íYOUTUBEíscripts/instagram.py, til dæmis"C7JRfAQAhQk_01": "abcDEF12345". Skriftan fellir myndbandið inn meðiframefráyoutube-nocookie.commeðloading="lazy", svo síðan helst létt og engar vafrakökur eru settar fyrr en smellt er á spilun. Myndbönd sem eru ekki á Instagram eru felld inn á sama hátt:<iframe src="https://www.youtube-nocookie.com/embed/<auðkenni>" title="<lýsing>" loading="lazy" allowfullscreen></iframe>Búðu til möppu fyrir viðfangsefnið, til dæmis
vefnadur/, meðindex.qmdsem forsíðu: hvað þetta er, kaflarnir sem kort og tengd viðfangsefni. Notaðuprjonavel/index.qmdsem fyrirmynd.Skrifaðu kaflana eftir sniðmátinu hér að neðan.
Skráðu heimildir í
heimildir.bibog vísaðu í þær á hverri síðu.Bættu viðfangsefninu við valmyndirnar í
_quarto.yml(navbarog nýttsidebar) og korti á forsíðuna.Skoðaðu vefinn á eigin tölvu og sendu inn breytinguna.
make preview
Þegar breytingin er komin á main greinina byggir GitHub Actions vefinn og birtir hann á GitHub Pages.
Sniðmát fyrir kafla
---
title: "Heiti kafla"
subtitle: "Ein setning um hvað lesandinn lærir"
---
::: {.hnotskurn}
**Í hnotskurn**
Tvær til þrjár setningar um aðalatriðin.
:::
## Það sem þú þarft
- Tæki, efni og hugbúnaður
## Skref fyrir skref
::: {.skref}
1. **Fyrsta skref.** Hvað á að gera.
2. **Annað skref.** Hvað á að gera.
:::
## Algeng vandamál
| Hvað gerist? | Af hverju? | Hvað hjálpaði? |
|---|---|---|
| | | |
## Kóðinn
Hlekkur á geymslu og skipanir til að keyra.
::: {.hofundur}
Nafn nemandans sem vann verkið. Úr skýrslu verkefnisins [@lykill-i-heimildaskra]; kóði í [geymsla](https://github.com/...).
:::Hugmyndir og verkáætlun vefsins eru í verkbeiðnum á GitHub.