Skip to main content

Orðalisti

Orðin sem koma fyrir á vefnum

Skýringarnar eru teknar úr lokaskýrslunni (Lúðvíksson o.fl., 2024). Smelltu á hlekkinn til að sjá orðið í samhengi.

Vélin

Orð Skýring
Nálabeð Hluti vélarinnar með nálunum og brautinni sem sleðinn rennur eftir. Á Passap E6000 eru 179 nálar. Kynnstu vélinni
Sleði / lás Rennur yfir nálabeðið. Í honum eru tveir ljósskynjarar og tveir seglar. Kynnstu vélinni
Nálastillir (e. pusher) Er undir nálinni og ýtir henni í prjónastöðu. Setur nálina í virka eða óvirka stöðu fyrir hverja umferð.
Litaskiptir Geymir garn. Sleðinn skilar þar garni og tekur upp nýtt.
Stjórnborð / Form tölva Upprunalega tölvan á Passap E6000, tengd sleðanum með DIN-6 snúru. Stýrðu nálunum
Umferð Ein ferð sleðans yfir nálabeðið.
Einband Íslenskt garn frá Ístex. Frekar gróft garn sem hentar almennt ekki vel fyrir prjónavélar. Prjónaðu
Kniterate Nútíma prjónavél, hönnuð fyrir minni hönnuði og smærri framleiðendur. Bakgrunnur · kniterate.com

Tæknin

Orð Skýring
Arduino Örtölvan sem kemur í stað gamla stjórnborðsins. Stýrðu nálunum
DIN-6 Tengið á milli stjórnborðs og sleða.
Truflun (e. interrupt) Fer í gang í kóða örtölvunnar þegar ljósskynjari breytir um gildi.
Serial samskipti Samskipti örtölvu og tölvu yfir USB tengi.
Stýringin Forritið passAPI sem keyrir á tölvu, geymir mynstrin og matar örtölvuna. Stýringin á tölvunni
Mynsturfylki Fylki af heiltölum þar sem hver tala er ein lykkja. Mynstur er fylki af tölum
Floyd-Steinberg Reiknirit sem er notað til að fækka litum í mynd. Frá mynd í mynstur
Flood fill Reiknirit sem er notað til að finna bakgrunn myndar.
Wave Function Collapse (WFC) Tækni úr tölvuleikjagerð sem býr til flæðandi grunnmynd eftir fyrirfram gefinni forskrift. Spunagreind og mynstur
Spunagreind Gervigreind sem býr til nýtt efni, til dæmis myndir úr texta.

Hugmyndirnar

Orð Skýring
Sjónabók Íslensk sjónabók: safn tíu handrita frá 16.–18. öld með íslenskum útsaumsmynstrum. Stafræn Sjónabók
STEAM Science, Technology, Engineering, Arts, and Mathematics.
FOSS Free and Open Source Software, frjáls og opinn hugbúnaður. Nýnæmi
Hönnunarhugsun (e. Design Thinking) Hönnunarferli í fimm stigum: samkennd, þarfir, hugmyndir, frumgerð og prófun. Hönnun úr prufum
Hringrásarhagkerfi Hagkerfi þar sem endurnýting er í forgrunni.
Stand-up Stuttur daglegur stöðufundur. Í verkefninu fór hann fram skriflega með GeekBot. Sumarið 2024
  1. Skýringarnar eru orðaðar eftir því hvernig orðin eru notuð í skýrslunni.

Heimildir

Lúðvíksson, E., Hilmarsdóttir, G. Í., og Ásgeirsdóttir, S. E. (2024). Lokaskýrsla: HiDef Textíll: Tæknivæddar prjónavélar [Lokaskýrsla til Nýsköpunarsjóðs námsmanna]. Háskóli Íslands. https://github.com/HiDefTextiles/NSN-2024