Skip to main content

Fólkið og samstarfið

Nemendur, kennarar, samstarfsaðilar og fjármögnun

Stjórnun

Verkefninu var stýrt af kennurum við Háskóla Íslands og Listaháskóla Íslands, þar sem hver kennari hafði ábyrgðarsvið tengt sínu sérsviði.

Verkefnisstjóri og ábyrgðaraðili er Helga Ingimundardóttir, lektor í iðnaðarverkfræði við Háskóla Íslands. Verkefnið er hluti af rannsóknarverkefni hennar við háskólann, HiDef Textíll: Bestun á textílferlum með gervigreind.

Nemendur

Nemendur unnu að mestu sjálfstætt en höfðu greitt aðgengi að kennurum yfir sumarið. Hvert og eitt þeirra bar ábyrgð á útfærslu síns verkþáttar.

Vélbúnaður

Elías Lúðvíksson

Nýútskrifaður grunnnemi í vélaverkfræði við HÍ. Sá um vélrænan hluta verkefnisins: breytingar á prjónavélinni, tengingu við mótor og samskipti við örtölvu.

Prjónavélin

Hönnun og prjón

Guðrún Ísafold Hilmarsdóttir

Nýútskrifaður grunnnemi í fatahönnun við Listaháskóla Íslands. Sá um hönnunarvinnu, val á áferð og prjónaskap með íslensku einbandi.

Prjónaðu · Hönnun

Mynsturgerð

Snæfríður Ebba Ásgeirsdóttir

Grunnnemi í hagnýttri stærðfræði og tölvunarfræði við HÍ. Vann að þróun spunagreindarreiknirita og að því að stafræna mynstur Sjónabókar.

Mynsturgerð · Sjónabók

Maður situr við prjónavélina

Úr umfjöllun Morgunblaðsins um verkefnið. Ljósmynd: mbl.is, sjá greinina á mbl.is.

Kennarar

Nafn Hlutverk
Hafliði Ásgeirsson, tæknimaður í frumgerðarsmiðju HÍ Veitti Elíasi leiðsögn við vélrænar breytingar og þróun frumgerðar
Hafsteinn Einarsson, dósent í tölvunarfræði við HÍ Aðstoðaði Snæfríði við þróun spunagreindarreiknirita og tengdra hugbúnaðarlausna
Helga Ingimundardóttir, lektor í iðnaðarverkfræði við HÍ Verkefnastjóri og ábyrgðaraðili. Hafði yfirumsjón með verkefninu og tryggði að það fylgdi rannsóknaráætlun
Hörður Mar Tómasson, stundakennari við rafmagns- og tölvunarverkfræðideild HÍ Veitti Elíasi aðstoð við breytingar á raflögnum og tengingu við örtölvur
Ragna Bjarnadóttir, lektor í fatahönnun við LHÍ Veitti Guðrúnu Ísafold stuðning við textíl- og hönnunarvinnu

Stjórnskipulagið tryggir að verkefnið sé unnið á þverfaglegan hátt, þar sem hver þátttakandi hefur skýra ábyrgð sem tengist sérþekkingu hans.

Samstarf

Verkefnið er þverfaglegt samstarfsverkefni þar sem ólíkir aðilar, bæði innanlands og erlendis, koma að með mismunandi sérþekkingu og aðföng. Samstarfið reyndist lykilþáttur í framgangi verkefnisins.

Þjóðminjasafn Íslands og Heimilisiðnaðarfélagið

Veittu leyfi til að vinna með mynstur úr Sjónabók og deila þeim stafrænt með almenningi. Markmiðið er að auka útbreiðslu þessara séríslensku mynstra og gera þau aðgengileg hönnuðum og almenningi.

Marel

Veitti tæknilega ráðgjöf um breytingar á prjónavélinni. Fyrirtækið vill efla samstarf við háskóla og sá tækifæri í verkefni sem eflir hringrásarhagkerfi. Samstarfið tengir saman iðnað og akademíu.

Ístex

Lagði til garn. Þannig var stutt við hringrásarhagkerfi með innlendum efnivið: garn úr íslenskri ull í stað innfluttra efna.

Textílmiðstöð Íslands

Bauð teyminu í heimsókn á Blönduós til að sjá Kniterate vél í notkun og kynnast stafrænni textílsmiðju á Íslandi. Þar fékkst líka innsýn í ástand eldri prjónavéla. Stofnunin hefur tekið við mörgum úreltum vélum frá dánarbúum, því erfingjar vita oft ekki hvað má gera við þær.

Ýr Jóhannsdóttir (Ýrúrarí)

Íslenskur prjónahönnuður sem deildi reynslu sinni af bæði Kniterate og Passap vélum. Hún vann á Passap vélum áður en hún fékk Kniterate vél fyrr á árinu 2024. Samtalið gaf gagnlegar upplýsingar um hvernig best væri að aðlaga lausnirnar að prjónahönnuðum.

Owen Mace

Rafmagnsverkfræðingur frá Ástralíu sem hefur unnið að opnum hugbúnaði fyrir Passap prjónavélar. Teymið var í reglulegu sambandi við hann og ráðgjöf hans hjálpaði við að villugreina samskipti við vélbúnaðinn.

Kostnaður og fjármögnun

  • Nýsköpunarsjóður námsmanna styrkti verkefnið með 9 mannmánuðum til að greiða sumarlaun nemenda.
  • Rannsóknarsjóður Háskóla Íslands greiddi kostnað við breytingar á vélinni og uppsetningu á heimasíðu, sem hluta af rannsóknarverkefni Helgu Ingimundardóttur.
  • Ístex styrkti verkefnið með íslensku einbandi.
  • Öll önnur vinna var hluti af starfi akademískra starfsmanna, kostuð af samstarfsaðilum eða unnin í sjálfboðavinnu.

Af Instagram

Myndir og myndbönd sem teymið birti á Instagram meðan á verkefninu stóð. Öll myndböndin eru líka í spilunarlistanum HiDEF textiles á YouTube.

Elías Lúðvíksson, sem sá um vélauppfærslurnar. Ljósmynd: mbl.is/Kristinn Magnússon.
Elías Lúðvíksson, sem sá um vélauppfærslurnar. Ljósmynd: mbl.is/Kristinn Magnússon. Færslan á Instagram, 3. júní 2024.

Elías Lúðvíksson, Guðrún Ísafold Hilmarsdóttir og Snæfríður Ebba Ásgeirsdóttir. Úr lokaskýrslu verkefnisins (Lúðvíksson o.fl., 2024).

Heimildir

Lúðvíksson, E., Hilmarsdóttir, G. Í., og Ásgeirsdóttir, S. E. (2024). Lokaskýrsla: HiDef Textíll: Tæknivæddar prjónavélar [Lokaskýrsla til Nýsköpunarsjóðs námsmanna]. Háskóli Íslands. https://github.com/HiDefTextiles/NSN-2024