Borðar, bakgrunnar og letur
Skreyttu prjónamynstur með Sjónabók
Í hnotskurn
Mynstur úr Sjónabók má nota á þrjá vegu í prjónamynstri: sem borða í kringum mynd, sem bakgrunn á bak við mynd og sem letur til að skrifa texta.
Þessi föll eru í HiDefTextiles/mynsturgerd og nota mynstur úr stafrænu Sjónabókinni sem textaskrár. Þau vinna á mynsturfylki.
add_border bætir borða umhverfis mynstrið eftir óskum notandans. side segir á hvaða hliðar borðinn fer, í röðinni efst, neðst, vinstri, hægri.
from AddBackgroundAndBorder import *
p = "~/absolute/path/to/border/pattern.txt"
# auður rammi utan um myndina
matrix = add_border(matrix=matrix, side=[1,1,1,1], size=[2,2,2,2],
border_background_shade=4)
# borði úr Sjónabók
matrix = add_border(matrix=matrix, border_file_path=p, side=[1,1,1,1],
border_dark_shade=4, border_background_shade=1)add_background setur Sjónabókarmynstur sem bakgrunn. Fallið nýtir flood fill reikniritið (Burtsev og Kuzmin, 1993).
background_path = "~/absolute/path/to/background/pattern.txt"
matrix = add_background(matrix, background_path,
background_color_0=2, background_color_1=3,
border=True, border_color=1)Ef næsta mynd fær sama bakgrunn renna bakgrunnarnir saman í eina heild, þannig að engin skil sjást á milli myndanna tveggja.
Snæfríður Ebba Ásgeirsdóttir. Úr lokaskýrslu verkefnisins (Lúðvíksson o.fl., 2024); kóði í mynsturgerd (HiDef Textiles, 2024).


