Skip to main content

Verðmæti

Hvað verkefnið gefur samfélaginu

Í hnotskurn

Varan er í raun kennsluefnið og þekkingin sem safnaðist. Verðmætið felst ekki í tekjum af einstökum afurðum, heldur í stuðningi við sjálfbærni, nýsköpun, menntun og varðveislu íslensks menningararfs.

Viðskiptaleg markmið

Verkefnið miðar að opnu aðgengi og valdeflingu nýrra hönnuða, með opnum lausnum fyrir Passap prjónavélar og útbreiðslu mynstra úr Sjónabók.

  • Passap prjónavélar eiga að verða aðgengileg vinnutæki fyrir hönnuði, sem geta nýtt þær í sköpun sína án þess að leggja í of háan startkostnað.
  • Mynstur úr Sjónabók eiga að vera aðgengileg almenningi á stafrænu formi.

Varan sjálf er í raun kennsluefni og þekkingin sem hefur safnast í verkefninu. Hún sýnir hvernig hægt er að vinna þverfaglega innan háskólasamfélagsins og með innlendum fyrirtækjum. Áherslan er á fræðslu og hagnýtar lausnir fyrir hönnuði og menntastofnanir, frekar en hefðbundna markaðshlutdeild og veltu.

Leið á markað

Almenn verðmætasköpun

Fyrir hönnuði

Opnar lausnir fyrir snjallvæðingu eldri prjónavéla gefa smærri hönnuðum tækifæri til að nýta þær á hagkvæman hátt í framleiðslu sinni. Þetta gerir nýsköpun innan textíliðnaðarins aðgengilegri og lækkar þröskuldinn fyrir þá sem vilja þróa eigin vöru.

Fyrir umhverfið

Áherslan er á endurnýtingu eldri véla og innlends efniviðar eins og íslenskrar ullar. Í stað þess að henda úreltri tækni eru tækin snjallvædd og komið aftur í notkun. Þetta styður hringrásarhagkerfi þar sem verðmæti verður til úr því sem annars gæti farið til spillis.

Fyrir menningararfinn

Mynstur úr Sjónabók verða aðgengileg á stafrænu formi og geta nýst í fjölbreyttum skapandi verkefnum, innanlands og utan. Þannig er íslensk arfleifð varðveitt og verður hluti af samtímahönnun.

Fyrir menntun

Kennsluefni sem tengir saman STEAM greinar eykur vitund og áhuga á þverfaglegri nýsköpun. Það getur eflt samstarf innan menntastofnana og skapað tækifæri fyrir nýsköpun sem byggir bæði á tækni og sköpunargáfu.

Þannig er verðmætasköpunin ekki bundin við tekjur af einstökum afurðum, heldur við fjölþættan stuðning við sjálfbærni, nýsköpun, menntun og varðveislu íslenskrar menningararfleifðar.

Elías Lúðvíksson, Guðrún Ísafold Hilmarsdóttir og Snæfríður Ebba Ásgeirsdóttir. Úr lokaskýrslu verkefnisins (Lúðvíksson o.fl., 2024).

Heimildir

About us – Machine Knit Community. (e.d.). Sótt https://www.mkc.community/about-us
Guðmundsdóttir, V. L. (2024). Sjálfvirknivædd prjónavél í bígerð. Morgunblaðið. https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024/06/02/sjalfvirknivaedd_prjonavel_i_bigerd/
Lúðvíksson, E., Hilmarsdóttir, G. Í., og Ásgeirsdóttir, S. E. (2024). Lokaskýrsla: HiDef Textíll: Tæknivæddar prjónavélar [Lokaskýrsla til Nýsköpunarsjóðs námsmanna]. Háskóli Íslands. https://github.com/HiDefTextiles/NSN-2024