Skip to main content

Mynstur er fylki af tölum

Svona lýsir þú prjóni fyrir tölvu

Í hnotskurn

Prjónamynstur er fylki af heiltölum. Hver tala er ein lykkja og gildið segir í hvaða lit hún er. Vélin prjónar einn lit í einu, svo mynstrið er klofið í umferðir áður en það er sent.

Tölur og litir

Litirnir geta í mesta lagi verið fjórir. Mynstur sem sent er á vélina inniheldur því heiltölurnar 1, 2, 3 og 4, eftir því með hve mörgum litum á að prjóna.

Tala Merking
1 lykkja í lit eitt
2 lykkja í lit tvö
3 lykkja í lit þrjú
4 lykkja í lit fjögur
0 óprjónuð lykkja

Dæmi úr skýrslunni um einfalda mynd í þremur litum:

1 1 1 1 1
1 1 2 1 1
1 2 3 2 1
1 1 2 1 1
1 1 1 1 1

Vélin prjónar einn lit í einu

Vélin prjónar aðeins með einum lit í einu og prjónar tvær umferðir áður en skipt er um lit. Ef prjónað er með fjórum litum tekur hver lína í mynsturfylkinu því átta umferðir í vélinni.

Fallið separateColors aðskilur litina í hverri línu í sérstaka lista, fyllir upp í með núllum og lætur hvern lista koma tvisvar fyrir. Fyrst fer sleðinn frá hægri til vinstri og svo frá vinstri til hægri.

Inn: ein lína

[1, 2, 2, 3, 4]

Út: átta umferðir

[[1, 0, 0, 0, 0], [1, 0, 0, 0, 0],
 [0, 2, 2, 0, 0], [0, 2, 2, 0, 0],
 [0, 0, 0, 3, 0], [0, 0, 0, 3, 0],
 [0, 0, 0, 0, 4], [0, 0, 0, 0, 4]]

Kóðinn

Fallið separateColors er í ProcessPatternsForMachine.py í HiDefTextiles/mynsturgerd. Þetta var fyrsti kóðinn sem skrifaður var: hann tekur fylki af tölum sem táknar mynd og kemur því á rétt form til að senda á prjónavélina.

Næst: breyttu mynd í svona fylki, eða sendu fylkið á vélina.

Snæfríður Ebba Ásgeirsdóttir. Úr lokaskýrslu verkefnisins (Lúðvíksson o.fl., 2024); kóði í mynsturgerd (HiDef Textiles, 2024).

Heimildir

HiDef Textiles. (2024). mynsturgerd: sjálfvirk mynsturgerð fyrir prjónavélina. GitHub. https://github.com/HiDefTextiles/mynsturgerd
Lúðvíksson, E., Hilmarsdóttir, G. Í., og Ásgeirsdóttir, S. E. (2024). Lokaskýrsla: HiDef Textíll: Tæknivæddar prjónavélar [Lokaskýrsla til Nýsköpunarsjóðs námsmanna]. Háskóli Íslands. https://github.com/HiDefTextiles/NSN-2024