Spunagreind og mynstur
Það sem var prófað, það sem virkaði og það sem bíður
Í hnotskurn
Upphaflega átti spunagreind að búa til ný prjónamynstur. Það reyndist erfitt, svo leiðin varð einfaldari: mynstrum frá ólíkum notendum er bætt saman með góðu flæði á milli. Tvær tilraunir eru ókláraðar og bíða næsta hóps.
Fyrsta hugmyndin: Dall-E 2 og Midjourney
Upphaflega var stefnt að því að nota spunagreind til að búa til ný prjónamynstur með tækni eins og Dall-E 2 (OpenAI, e.d.) og Midjourney (Midjourney, e.d.). Það reyndist erfitt að fá áreiðanlegar niðurstöður sem fylgdu textaskilaboðunum nákvæmlega.
Önnur hugmynd: tækni úr tölvuleikjum
Teymið vildi tryggja fallegt flæði milli ólíkra mynstra og skoðaði því tækni úr tölvuleikjagerð, Wave Function Collapse (WFC), sem býr til flæðandi grunnmynd eftir fyrirfram gefinni forskrift.
WFC reikniritið var sett upp með hnútum sem finna má á mörgum stöðum í Íslenskri sjónabók. Ákveðið var að þessi mynsturgerð hentaði ekki í hönnunarvinnuna að svo stöddu og því var ekki kafað dýpra.
Það sem varð ofan á
Niðurstaðan var að þróa einfaldara módel sem bætir saman mynstrum frá ólíkum notendum með góðu flæði á milli þeirra. Fallið sem setur bakgrunn úr Sjónabók á mynd er útfært þannig að næsta mynd getur fengið sama bakgrunn, og þá renna bakgrunnarnir saman í eina heild.
Tengt efni:
- Opna vefviðmótið býr til mynd úr texta notandans með hjálp gervigreindar og breytir henni í mynstur.
- Frá mynd í mynstur breytir mynd í prjónamynstur.
Ókláruð verkefni
Sjálfvirk litun
Byrjað var að þróa aðferð sem litar mynstur úr Sjónabók sjálfvirkt í 3 til 4 litum. Sökum tímahraks tókst ekki að klára þá vinnu, en hún var komin nokkuð áleiðis og mætti halda áfram með hana síðar.
Wave Function Collapse
Sett upp og prófað, en ekki kafað dýpra að svo stöddu.
Snæfríður Ebba Ásgeirsdóttir, með aðstoð Hafsteins Einarssonar. Úr lokaskýrslu verkefnisins (Lúðvíksson o.fl., 2024).

