Sendu mynstur á vélina
Ein netbeiðni með upphafsnál og mynstri
Í hnotskurn
Þegar stýringin er komin í gang sendir þú henni mynstur sem JSON hlut. Mynstrið býrðu til sjálf(ur) eða með föllunum í Mynsturgerð.
Stýringin tekur við mynstrum sem netbeiðnum. Beiðnin er JSON hlutur:
{
"start": -10,
"pattern": [
[0,0,0,2,2,2],
[2,2,2,0,0,0],
[0,0,0,1,1,1],
[1,1,1,0,0,0]
],
"msg": ["test","",""]
}startsegir hvaða nál er lengst til vinstri í mynstrinu. Nálin lengst til vinstri á beðinu er -90. Nálar vinstra megin við miðju eru neikvæðar og hægra megin jákvæðar.patterner mynstrið, þar sem hver lína inniheldur 0 eða gildi frá 1 til 4. Sléttar línur (0, 2, 4, …) eru þegar sleðinn fer frá vinstri til hægri, frá enda að litaskipti. Oddalínur eru þegar hann fer frá litaskipti að enda.
Stýringin skrifar í console hvoru megin við mynstrið þú ert, hvaða línu þú gerir næst og hvaða litur á að vera í notkun. Liturinn er hæsta gildið í línunni.
import requests
r = requests.post("http://localhost:3000/api/pattern",
json={"start": start, "pattern": pattern})Í kóða passAPI er leiðin skilgreind sem POST /pattern undir /api (src/app.ts og src/routes/api.ts) og stýringin hlustar á porti 3000 nema PORT sé stillt. README í passAPI nefnir localhost:3000/pattern.
Fallið patternMatrixToJson(A, start, file) skrifar sama form í JSON skrá. Fylkið má hafa í mesta lagi 180 dálka og start er staðsetning á nálabeðinu.
Samskiptastaðallinn
Einn af áföngum verkefnisins var samskiptastaðall fyrir prjónavélina. Mynstur frá notendum eru sett á miðlægan gagnagrunn. Þaðan er lesið hvaða mynstur eru í bið og seglum og mótor stýrt eftir þeirri forskrift. Mynstrin í gagnagrunninum koma frá opna vefviðmótinu.
Af Instagram
Myndir og myndbönd sem teymið birti á Instagram meðan á verkefninu stóð. Öll myndböndin eru líka í spilunarlistanum HiDEF textiles á YouTube.
Elías Lúðvíksson (stýringin) og Snæfríður Ebba Ásgeirsdóttir (mynsturkóðinn). Úr lokaskýrslu verkefnisins (Lúðvíksson o.fl., 2024); kóði í passAPI (HiDef Textiles, 2024b) og mynsturgerd (HiDef Textiles, 2024a).