Skip to main content

Prjónaðu

Margir litir, íslenskt einband og það sem fer úrskeiðis

Í hnotskurn

Prufurnar byrjuðu í tveimur litum og enduðu í fjórum. Fjórir litir gengu betur þegar aðeins önnur hver lykkja var prjónuð að aftan. Íslenskt einband er gróft garn og þarf sína prjónaáferð.

Úr tveimur litum í fjóra

  1. Tveir litir. Fyrstu prufur sumarsins voru texti og mynstur í tveimur litum, send á vélina með kóðanum.
  2. Þrír litir. Með uppfærslu var hægt að prjóna með þremur litum.
  3. Fjórir litir. Að lokum fjórir. Útkoman varð sífellt áhugaverðari og flóknari.
AðvörunFjórir litir: breyttu prjóninu

Í byrjun gekk illa að prjóna með fjórum litum. Þá voru prjónaðar 8 umferðir á aftara borðinu fyrir hverja eina umferð á því fremra og það olli miklum vandræðum.

Lausnin var breytt prjón sem prjónar aðeins aðra hverja lykkju að aftan. Þá eru prjónaðar 4 umferðir að aftan fyrir hverja eina að framan.

Íslenskt einband

Verkefnið fékk einband á kónum frá Ístex. Einband er frekar gróft garn sem hentar almennt ekki vel fyrir prjónavélar. Sem dæmi er ekki hægt að nota einband í Kniterate prjónavélar án þess að það slitni í tíma og ótíma.

Prófaðar voru mismunandi prjónaáferðir til að finna lausn sem hentar einbandi, og eftir sumarið hafði náðst ágætur árangur í því.

Algeng vandamál

Hvað gerist? Af hverju? Hvað hjálpaði?
Ójöfn spenna á garni Spennugjafinn var orðinn misilla farinn fyrir ólíka garnleiðara Frekari reynsla af vélinni og mótorinn, sem gefur jafnara átak á prjónið
Langir spottar á jaðri stykkisins Tengist spennu garnsins og því hve langt sleðinn ferðast umfram það sem er prjónað Sama: reynsla og mótorinn
Garnið kemst illa á nálarnar og sleðinn festist Gleymdist að setja strekkjarana aftur á eftir lagfæringu Setja strekkjarana aftur á
Sleðinn prjónar garnlaus og prjónið fellur af Sleðinn náði ekki að grípa næsta lit Byrja upp á nýtt eða hengja lykkjurnar aftur á. Þetta kom sem betur fer ekki oft fyrir
Hlutur sem heldur garni vantar Stykkið var þrívíddarprentað

Lærðu á vélina fyrst

Í júní voru prjónaðar ýmsar prufur til að kynnast vélunum. Fyrst voru gerðar prufur úr handbókinni fyrir Passap Duomatic 80 á þá vél, en seinna á Passap Electronic 6000. Báðar vélarnar virka svipað en sú síðari er tengd við tölvuna sem fylgir vélinni.

Prufurnar heppnuðust misvel og í ljós kom að vélarnar eru ekki mjög notendavænar. Fylgt var kennslumyndböndum frá framleiðanda á YouTube til að gera prufur á tölvunni sem fylgdi Passap E6000, en þá kom oft upp ERROR og þurfti að byrja upp á nýtt.

Af Instagram

Myndir og myndbönd sem teymið birti á Instagram meðan á verkefninu stóð. Öll myndböndin eru líka í spilunarlistanum HiDEF textiles á YouTube.

Fyrsta æfingarverkefnið úr Duo80 handbókinni: pottaleppur. Færslan á Instagram, 19. maí 2024.
Fyrstu prufurnar eftir æfingamynstrum í leiðarvísinum fyrir Duo80.
Fyrstu prufurnar eftir æfingamynstrum í leiðarvísinum fyrir Duo80. Færslan á Instagram, 30. maí 2024.
Mannleg mistök: hér prjónaðist ekki af nálunum eins og búist var við.
Mannleg mistök: hér prjónaðist ekki af nálunum eins og búist var við. Færslan á Instagram, 30. maí 2024.

Guðrún Ísafold Hilmarsdóttir. Úr lokaskýrslu verkefnisins (Lúðvíksson o.fl., 2024).

Heimildir

Lúðvíksson, E., Hilmarsdóttir, G. Í., og Ásgeirsdóttir, S. E. (2024). Lokaskýrsla: HiDef Textíll: Tæknivæddar prjónavélar [Lokaskýrsla til Nýsköpunarsjóðs námsmanna]. Háskóli Íslands. https://github.com/HiDefTextiles/NSN-2024