Skip to main content

Opið vefviðmót

Gestir senda inn hugmynd að mynstri í texta

Í hnotskurn

Opna vefviðmótið tekur við textabeiðnum frá notendum. Úr textanum verður mynd, úr myndinni mynsturfylki og fylkið er vistað í gagnagrunni. Stýringin sækir svo mynstrin þaðan og prjónar þau.

Vefsíða með reitum fyrir nafn og skilaboð og takkanum Senda

Vefviðmótið sem tekur við hugmyndum notenda að mynstrum.

Hvað gerist þegar þú ýtir á Senda?

  1. Vefviðmótið tekur við textabeiðni frá notanda.
  2. Það nýtir netsamskipti til að búa til mynd úr textanum með hjálp gervigreindar.
  3. Bakgrunnurinn er staðlaður.
  4. Myndinni er breytt í mynsturfylki.
  5. Fylkið er vistað í gagnagrunni.
  6. Stýringin sækir mynstur úr gagnagrunninum þegar ekkert annað mynstur er í vinnslu eða bið, og stýrir seglum og mótor eftir því.

flowchart LR
  n(["Notandi"]) --> s["Síða"]
  s <--> db[("Gagnagrunnur")]
  db <--> v(["Vél"])

Skýringarmyndin fylgir línunni Notandi -> Síða <--> DB <--> vél í README geymslunnar.

Settu það upp

Kóðinn er í tungufoss/passapnext. Þetta er Next.js vefsíða með bakenda og framenda.

  1. Sæktu kóðann.

    git clone https://github.com/tungufoss/passapnext.git
    cd passapnext
  2. Stilltu breytur í keyrsluumhverfinu.

    Breyta Gildi
    DATABASE_URL Hlekkur fyrir samskipti við PostgreSQL gagnagrunn
    YOUR_ORG_ID Fengið frá OpenAI API
    PROJECT_ID Fengið frá OpenAI API
    OPENAI_API_KEY Fengið frá OpenAI API
  3. Keyrðu vefinn.

    npm run dev

    Opnaðu svo http://localhost:3000 í vafra.

Meira um hugmyndina á bak við þetta: Spunagreind og mynstur.

Elías Lúðvíksson. Úr lokaskýrslu verkefnisins (Lúðvíksson o.fl., 2024); kóði í passapnext (Lúðvíksson, 2024).

Heimildir

Lúðvíksson, E. (2024). passapnext: opið vefviðmót. GitHub. https://github.com/tungufoss/passapnext
Lúðvíksson, E., Hilmarsdóttir, G. Í., og Ásgeirsdóttir, S. E. (2024). Lokaskýrsla: HiDef Textíll: Tæknivæddar prjónavélar [Lokaskýrsla til Nýsköpunarsjóðs námsmanna]. Háskóli Íslands. https://github.com/HiDefTextiles/NSN-2024