Skip to main content

Stýringin á tölvunni

passAPI geymir mynstrin og matar örtölvuna

Í hnotskurn

Nýja stjórnborðið er í tveimur hlutum: Arduino örtölvan og stýring sem keyrir á tölvu. Stýringin geymir mynstrin, sendir örtölvunni eina umferð í einu og er með vefviðmót fyrir þann sem stjórnar vélinni.

Hvað gerir stýringin?

Á tölvunni þarf að vera uppsett Node.js 20+ og USB tenging við örtölvuna. Stýringin á tölvunni:

  • geymir öll mynsturfylkin í heild og matreiðir þau fyrir örtölvuna á réttu formi,
  • bíður eftir skilaboðum frá örtölvunni. Þegar strengur berst athugar hún fyrst hvort mynstur bíði vinnslu:
    • L sækir næstu línu aðeins ef númer línunnar er slétt tala. Sléttar línur eru stilltar frá vinstri til hægri og prjónaðar í öfuga átt.
    • R sækir næstu línu aðeins ef númer línunnar er oddatala. Stilling og prjón eru þá í öfuga átt við L.
  • setur nýtt mynstur strax í vinnslu ef ekkert er í bið, annars aftast í röðina,
  • tekur við mynstrum í gegnum netbeiðnir. Beiðnin þarf að innihalda upphafspunkt og mynsturfylki með tölugildum frá 0 til 4, eitt gildi fyrir hvern lit. Stýringin þýðir fylkið: öll núll verða að einum og öll önnur gildi að núlli,
  • getur sótt mynstur úr gagnagrunni ef ekkert mynstur er í vinnslu eða bið.

Stýringunni fylgir vefviðmót stjórnanda. Þar er hægt að eyða mynstrum, breyta upphafsnál og fleira, og grafík sýnir hvaða umferð er verið að stilla, hvað var stillt síðast og hvað kemur næst.

Skjámynd af vefviðmóti með mynsturtöflu og tökkum

Vefviðmót stjórnanda í passAPI.

Settu stýringuna upp

Kóðinn er í HiDefTextiles/passAPI. Geymslan inniheldur bæði stýringuna (Node.js, TypeScript og JavaScript) og kóðann fyrir Arduino örtölvuna í möppunni arduino/.

  1. Sæktu kóðann.

    git clone https://github.com/HiDefTextiles/passAPI.git
    cd passAPI
  2. Settu Arduino kóðann á örtölvuna og tengdu hana við tölvuna með USB.

  3. Sæktu pakkana.

    npm install
  4. Stilltu gagnagrunn ef þú vilt sækja mynstur úr gagnagrunni. Búðu til skrána .env með tengistreng á SQL gagnagrunn sem er settur upp með skemanu í src/db/sql:

    DATABASE_URL = connectionstring
  5. Keyrðu stýringuna.

    npm run dev

    Stýringin ræsist ekki ef engin opin serial tenging finnst við Arduino.

ÁbendingGott að vita (úr README í passAPI)
  • Örtölvan endurræsist í hvert skipti sem tengst er við hana.
  • Það þurfa að líða 2 sekúndur frá því að Node.js tengist Arduino yfir serial.
  • Í README er uppsetningin gerð með Node v23.5.0. Skýrslan segir Node.js 20+.

Elías Lúðvíksson. Úr lokaskýrslu verkefnisins (Lúðvíksson o.fl., 2024); kóði og uppsetning í passAPI (HiDef Textiles, 2024).

Heimildir

HiDef Textiles. (2024). passAPI: stýring fyrir Passap E6000. GitHub. https://github.com/HiDefTextiles/passAPI
Lúðvíksson, E., Hilmarsdóttir, G. Í., og Ásgeirsdóttir, S. E. (2024). Lokaskýrsla: HiDef Textíll: Tæknivæddar prjónavélar [Lokaskýrsla til Nýsköpunarsjóðs námsmanna]. Háskóli Íslands. https://github.com/HiDefTextiles/NSN-2024