flowchart LR braut["Braut"] -. "ljós / skuggi" .-> skynjari["Ljósskynjari"] skynjari -- "5V: hár / lágur" --> sledi["Sleði / lás"] spenna["Spennubreytir"] -. "15V" .-> bord["Stjórnborð"] bord <-- "5V: hár / lágur" --> sledi bord -. "15V" .-> sledi sledi -. "15V: hár / lágur" .-> seglar["Seglar"] seglar -. "upp / niður" .-> nal["Nálastillir"]
Stýrðu nálunum
Arduino kemur í stað gamla stjórnborðsins
Í hnotskurn
- Upprunalega stjórnborðinu er skipt út fyrir Arduino örtölvu með 12V spennubreyti, sem er beintengd við sleðann.
- Örtölvan veit hvar sleðinn er og segir tölvunni hvort hann er kominn út fyrir mynstrið vinstra megin (
L) eða hægra megin (R). - Tölvan svarar með næstu umferð mynstursins. Um hana er fjallað í Stýringin á tölvunni.
Hvernig virkaði þetta upprunalega?
Upprunalega vélin er með stjórnborð, svokallaða Form tölvu, sem tengist með DIN-6 snúru við sleðann. Í sleðanum er rafrás með ljósskynjurum sem skynja göt á brautinni sem sleðinn rennur eftir. Götin eru 2 mm breið og 3 mm eru á milli gata. Hver nál er 5 mm.
Endurteiknað eftir kerfismyndinni Stýring sem stillir nálar prjónavélarinnar í skýrslunni.
DIN-6 tengið
Teikningar fyrir tenginguna í gegnum DIN tengið eru fengnar af vefsíðu Backspace hakkarasmiðjunnar í Bamberg (Backspace, e.d.).
- Pinnar 2 og 4 taka við straumi frá ljósskynjurum sleðans.
- Pinnar 5 og 6 stýra stöðu seglanna tveggja. Einn segull er fyrir hvora átt.
- Til að snúa seglunum við þarf að minnsta kosti 12V straum. Pinnarnir senda merki um hvort straumnum sé hleypt á seglana eða ekki.
Sleðinn stillir mynstur fyrir næstu umferð á meðan hann fer yfir nálabeðið og prjónar mynstrið sem þegar er á nálabeðinu.
Þessi teikning fylgir skýrslugeymslunni en það er ekki vísað í hana í texta skýrslunnar. Merkingarnar á henni (GRND, VIN, D2, D4, D5, D6, DIN 6) eru það eina sem við vitum um hana.
Í hvora átt fer sleðinn?
Í hvert skipti sem staðan á ljósskynjaranum sem er tengdur í pinna 2 á Arduino borðinu breytist, fer í gang truflun (e. interrupt) sem skoðar strax stöðuna á hinum skynjaranum. Tvennt getur gerst:
| Aflestur skynjaranna | Átt | Teljari |
|---|---|---|
| Sama gildi | Til hægri | Hækkar um einn |
| Sitthvort gildið | Til vinstri | Lækkar um einn |
Út frá þessum innri teljara veit örtölvan nákvæmlega hvar sleðinn er á nálabeðinu.
Teljarinn er aðeins réttur ef sleðinn er tekinn út af nálabeðinu og settur aftur inn á í hvert skipti sem örtölvan er endurræst eða endurtengd.
Hvað gerir örtölvan?
Kóðinn á örtölvunni er skrifaður í C++. Hann geymir vigur af lengd 179, eitt gildi fyrir hverja nál. Tvær breytur til viðbótar halda utan um mynstrið: upphafspunktur og lengd mynsturs. Grunngildin eru -10 og 10.
Örtölvan sendir tvenns konar skilaboð yfir serial samskipti:
Lþegar sleðinn er vinstra megin við upphafspunktinn, það er teljarinn er lægri en upphafspunkturinn.Rþegar sleðinn er hægra megin við mynstrið, það er teljarinn er hærri en upphafspunkturinn að viðbættri lengd mynstursins.
Þegar engin truflun er í gangi athugar örtölvan hvort skilaboð hafi borist yfir serial tengið. Strengur með fleiri en 3 stök er lesinn sem mynsturstrengur. Styttri strengir eru skipanir, sjá Stýrðu mótornum.
Mynsturstrengurinn
Strengurinn byrjar á formerki, plús eða mínus. Næst koma tveir tölustafir frá 01 upp í 90. Loks kemur mynstrið fyrir næstu umferð. Dæmið í skýrslunni er svona:
- 0 5 0 0 1 1 0 0 1
- Formerkið segir hvoru megin við miðju nálabeðsins mynstrið byrjar.
- Upphafspunkturinn er númer nálarinnar sem mynstrið byrjar á.
- Mynstrið er alltaf skrifað frá vinstri til hægri. Strengurinn hefur núll fyrir hverja nál sem á að prjóna lykkju.
Af Instagram
Myndir og myndbönd sem teymið birti á Instagram meðan á verkefninu stóð. Öll myndböndin eru líka í spilunarlistanum HiDEF textiles á YouTube.
Elías Lúðvíksson. Úr lokaskýrslu verkefnisins (Lúðvíksson o.fl., 2024); kóði í passAPI (HiDef Textiles, 2024). Teikningar af DIN-6 tengingunni frá Backspace í Bamberg (Backspace, e.d.).

