Stýrðu mótornum
Rafrás sem ýtir á takkana fyrir þig
Í hnotskurn
Rafrásir eldri takkastýringar eru enn til staðar inni í Passap E6000. Með því að tengja fram hjá stjórnborðinu verða takkarnir aftur starfhæfir. Lítil rafrás með 7407N kubbi leyfir svo Arduino örtölvunni að „ýta” á takkana.
Smá saga
Passap vélarnar þróuðust mikið á meðan þær voru í framleiðslu:
Handvirkt
Notandinn stillti mynstrin sjálfur og færði sleðann.
Mótor og seglar
Snemma kom lausn með mótor og einföldum breytingum á mynstri með seglum. Fyrstu mótorunum var stýrt með fótapedölum.
Takkastýring
Síðan kom takkastýring sem gerði notendum kleift að stýra mótornum á þægilegri máta.
Passap E6000
Stjórnborð með innbyggðri Form tölvu sem gat gert alls kyns mynstur. Stjórnborðið tók hins vegar yfir stjórn á tökkunum, svo það þurfti að vera tengt og kveikt á því til að hægt væri að ýta á takkana.
Þegar vélin var tekin í sundur kom í ljós að rafrásir eldri útgáfnanna eru enn til staðar og hægt er að tengja fram hjá stjórnborðinu. Þá virka takkarnir aftur án stjórnborðsins. Kosturinn við takkastýringuna er að hún er skýr og einföld og notandinn upplifir meiri stjórn á ferlinu.
Rafrásin
Takkarnir virka þannig að þeir eru alltaf með 5V straum á high. Þegar takki er tengdur í ground (merkt GRND á myndinni) er hann virkur, eins og ýtt hafi verið á hann. 7407N kubburinn hermir eftir því.
Svona lestu myndina:
- Grænu jaðarpunktarnir til vinstri og hægri eru tenging við Arduino örtölvuna, sem sendir skilaboð á kubbinn.
- Kubburinn er 14 samhverfu grænu punktarnir um miðjuna. Þeir taka við skipunum frá pinnum örtölvunnar sem lágum straumi. Þá er pinninn fyrir neðan á myndinni tengdur í ground (GRND), og takkinn sem hann tengist verður virkur.
- Þeir pinnar tengjast rafrásum sem fara í 6 pinna RJ12 tengi. Tengið sem fer út er hægra megin við kubbinn. Þaðan fara skilaboðin til mótorstýringarinnar.
- Vinstra megin við kubbinn er annað tengi fyrir takkaborðið. Þá helst virkni takkanna, með viðbættri stýringu í gegnum örtölvuna.
Skipanir
Í Arduino kóðanum er pláss fyrir skipanir á strengjaformi sem eru 3 stafir eða færri. Nú þegar er skipunin s notuð til að slökkva og kveikja á mótornum.
Margar prufur sumarsins voru prjónaðar með handafli og það var tímafrekt. Með mótornum verður átakið á prjónið jafnara. Sjá Prjónaðu.
Af Instagram
Myndir og myndbönd sem teymið birti á Instagram meðan á verkefninu stóð. Öll myndböndin eru líka í spilunarlistanum HiDEF textiles á YouTube.
Elías Lúðvíksson. Úr lokaskýrslu verkefnisins (Lúðvíksson o.fl., 2024); kóði í passAPI (HiDef Textiles, 2024). Skýrslan segir „tengdur í jörð (GRND)“; Helga Ingimundardóttir leiðrétti orðalagið.
